Forsíða
61.174 greinar á íslensku.
Náhvalur
Náhvalur (fræðiheiti: Monodon monoceros) er tegund tannhvala og er önnur af tveimur tegundum í hvíthvalaætt (Monodontidae). Hin er mjaldur (Delphinapterus leucas). Latneska fræðiheitið þýðir: „hvalurinn með eina tönn og eitt horn“.
Sérkenni náhvalsins er skögultönn sem vex fram úr höfðinu á fullvöxnum törfum. Tönnin verður allt að 2,7 metrar á lengd, hún vex vinstra megin fram úr efri gómi og snýst í spíral til vinstri. Það er með öllu óljóst hvaða hlutverki tönnin gegnir en sennilegt virðist að hún tengist samkeppni milli tarfa.
Náhvalurinn er fremur lítill hvalur, 4,2 til 4,7 metrar á lengd og um 1000 kg. Við fæðingu eru kálfarnir gráir eða dökkbrúnir en við tveggja ára aldur myndast ljósir flekkir á skrokknum, þeir aukast eftir því sem dýrið eldist þannig að fullorðin dýr eru dröfnótt, dökk á baki og að mestu ljós á kviði. Nafn hvalsins á íslensku og öðrum norrænum málum er talið vera dregið af líkindum dröfnóttrar húðarinnar við sjórekið lík. Náhvalurinn hefur ekkert trýni og ennið nær aðeins fram fyrir munninn. Hvalurinn hefur ekkert horn á baki, bægslin eru fremur stutt og á fullorðnum dýrum sveigjast þau upp við endana. Sporðurinn er sérkennilegur í laginu, fremri brún sporðblökunnar er bein en aftari jaðar hvors sporðhelmings sveigist frá miðju að hliðarjaðri.
Vissir þú...

- … að Ferdinand 1. Búlgaríukeisari var fyrsti þjóðhöfðinginn sem flaug um borð í flugvél?
- … að flestir fræðimenn telja að tala dýrsins, 666, í Opinberunarbók Jóhannesar, vísi til Nerós Rómarkeisara?
- … að Joseph Merrick, öðru nafni fílamaðurinn (sjá mynd), fékkst við að smíða vönduð smálíkön af byggingum úr pappa?
- … að talið er að yfir 800.000 Indverjar hafi látið lífið í hefndaraðgerðum Breta gegn uppreisninni á Indlandi árið 1857?
- … að kirkjan á Íslandi heyrði undir Erkibiskupsdæmið í Bremen frá stofnun fram til 1104 þegar erkibiskupsdæmið í Lundi var stofnað fyrir kirkjur Norðurlanda?
Fréttir

- 21. júlí: Daniel Ortega, meðforseti Níkaragva, lýsir því yfir að kosningar verði framvegis ekki haldnar í landinu.
- 20. júlí: Andy Burnham (sjá mynd) tekur við sem forsætisráðherra Bretlands.
- 19. júlí: Spánn vinnur heimsmeistaramótið í knattspyrnu karla.
- 8. júlí: Vopnahléi lýkur í Íransstríðinu.
Yfirstandandi: Borgarastyrjöldin í Jemen • Borgarastyrjöldin í Súdan • Innrás Rússa í Úkraínu / Stríð Rússlands og Úkraínu • Íransstríðið • Stríð Ísraels og Hamas
Nýleg andlát: Gunnar Þórðarson (29. júlí) • Glen Hansard (29. júlí) • Kevin Keegan (20. júlí) • Lindsey Graham (11. júlí) • Bonnie Tyler (8. júlí)
1. ágúst
- 2018 - Ebólafaraldur hófst í Kivu í Austur-Kongó. Þetta varð annar banvænasti ebólafaraldur sögunnar.
- 2019 – Danska heimskautarannsóknastöðin Polar Portal sagði frá því að 11 milljarðar tonna af ís hefðu bráðnað á einum degi á Grænlandsjökli.
- 2020 - Barakah-kjarnorkuverið í Sameinuðu arabísku furstadæmunum hóf starfsemi.
- 2023 - Sendiráði Íslands í Moskvu var lokað.
- 2023 - Loftslagsbreytingar: Methiti, 20,96°C, mældist í úthöfunum. Júlí hafði verið heitasti mánuður síðan mælingar hófust.
- 2024 - Halla Tómasdóttir tók við embætti forseta Íslands.
- 2024 - 26 fangar voru látnir lausir í fangaskiptum Rússland og Vesturlanda.
Systurverkefni
|
|